Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. mars 2023 17:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Van Dijk: Verðum að bæta við okkur gæðaleikmönnum
Mynd: Getty Images
Virgil van Dijk varnarmaður Liverpool var að vonum svekktur eftir að Liverpool féll úr leik í Meistaradeildinni í gær eftir tap gegn Real Madrid.

Liverpool hefur verið langt frá sínu besta á þessari leiktíð en Van Dijk kallar eftir breytingum á hópnum fyrir næsta tímabil.

„Leikmenn munu yfirgefa félagið, það er búið að tilkynna það. Svo við verðum að bæta við okkur gæðaleikmönnum ef við viljum vera áfram þar sem við höfum verið síðustu fimm ár," sagði Van Dijk.

„Það er nokkuð augljóst en það vita allir að það verður mjög erfitt. Það verður erfitt að finna réttu leikmennina en félagið verður að vinna vinnuna sína í þeim efnum."

Hann er staðráðinn í að koma liðinu í Meistaradeildina á næstu leiktíð.

„Við eigum enn marga leiki eftir og viðviljum spila í Meistaraeildinni. Það mun líka hjálpa okkur að laða bestu leikmenn heims að okkur. Ekki alltaf en það mun hjálpa," sagði Van Dijk.


Athugasemdir
banner
banner