City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 12:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sindri Kristinn kominn með lið í Svíþjóð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson (1997) er búinn að finna sér félag í Svíþjóð en hann yfirgaf Keflavík í síðustu viku.

Sindri er samkvæmt heimildum Fótbolta.net semja við Vasalund í sænsku C-deildinni.

Hann var einnig í viðræðum við Nodic United í B-deildinni og FC Stockholm í C-deildinni. Hjá Nordic United er William Eskelinen sem var hjá Vestra 2024. Á endanum valdi Sindri Vasalund.

Alexander Helgi Sigurðarson, leikmaður KR, var leikmaður Vasalund tímabilið 2022.

Vasalund er í Solna í Stokkhólmi. Sindri flutti til Svíþjóðar til að búa með kærustu sinni, landsliðskonunni Guðrúnu Arnardóttur sem spilar með Hammarby.
Athugasemdir
banner
banner