Fotbolti.net
16.05.13 - 14:21
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

David Beckham leggur skóna á hilluna (Staðfest)

David Beckham leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham sem leikur með Paris Saint-Germain í Frakklandi, hefur ákveðið að kalla þetta gott og leggja skóna á hilluna eftir afar farsælan feril.
Beckham, sem er 38 ára gamall, gekk til liðs við Manchester United aðeins 14 ára gamall og lék með þeim 398 leiki, þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu einu sinni.

Hann fór frá Manchester United árið 2003 og gekk þá til liðs við stjörnuprýtt lið Real Madrid þar sem honum tókst að vinna deildina árið 2007, en eftir það tók við spennandi ævintýri í Bandaríkjunum.

Hann samdi þá við Los Angeles Galaxy til fimm ára, en þar vann hann með annars MLS-deildina tvívegis. Í janúar á þessu ári gerði hann svo fimm mánaða samning við PSG í Frakklandi, en hann hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.

Beckham tókst að leika 115 landsleiki fyrir enska landsliðið og var meðal annars fyrirliði liðsins í langan tíma.

,,Ef þú hefðir sagt við mig að ég myndi spila með mínu uppáhaldsfélagi, leika yfir 100 leiki fyrir þjóð mína og spila með stærstu félögum heims þegar ég var yngri, þá hefði ég sagt þér að þetta væri óraunverulegt og þetta myndi aðeins gerast í draumaheimi,\" sagði Beckham.

,,Ég er heppinn að hafa upplifað þennan draum,\" sagði hann að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.