Fotbolti.net
16.05.13 - 12:23
Magnús Már Einarsson

Frank Lampard framlengir við Chelsea (Staðfest)

Frank Lampard framlengir við Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Frank Lampard hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Chelsea.

Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Lampard undanfarna mánuði en fyrri samningur hans átti að renna út í sumar.
Nú er ljóst að Lampard verður áfram hjá félaginu en hann hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Chelsea í kjölfarið á sigri liðsins í Evrópudeildinni í gær.

,,Ég er í skýjunum. Allir vita að draumur minn var að vera áfram hjá Chelsea,\" sagði Lampard eftir að hafa skrifað undir í dag.

,,Ég vil þakka Herra Abramovich fyrir allt sem hann hefur gert til að láta þennan draum verða að veruleika. Ég elska þetta félag, starfsfólkið, leikmennina og sérstaklega stuðningsmenna sem hafa verið frábærir frá fyrsta degi.\"

Hinn 34 ára gamli Lampard varð um síðustu helgi markahæsti leikmaðurinn í sögu Chelsea en hann hefur skorað 202 mörk með liðinu.

Heimild: Heimasíða Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.