16.05.14 - 09:38
Magnús Már Einarsson
Björn Jónsson í Kára (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Jónsson, fyrrum leikmaður KR, hefur gengið til liðs við Kára á Akranesi.
Björn hefur verið að glíma við mikil meiðsli undanfarin ár en hann lék einungis tvo leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.

Þessi 24 ára gamli miðjumaður hefur síðan ekkert spilað fótbolta í vetur eftir að samningur hans við KR rann út eftir síðasta tímabil.
Björn er uppalinn hjá ÍA en hann var á mála hjá Heerenveen í Hollandi í nokkur ár áður en hann gekk til liðs við KR árið 2011.
Björn er nú kominn með félagaskipti til Kára sem leikur í 4. deildinni í sumar en hinn þrautreyndi Sigurður Jónsson tók við þjálfun liðsins í síðustu viku.