16.05.14 - 10:24
Magnús Már Einarsson
Dan Gosling til Bournemouth (Staðfest)

Dan Gosling.

Mynd: Getty Images

Dan Gosling.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Dan Gosling er á förum frá Newcastle en hann fékk ekki nýjan samning hjá félaginu.
Gosling hefur gert fjögurra ára samning við Bournemouth í kjölfarið en félagaskiptin ganga í formlega í gegn þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar þann 1. júlí.
Hinn 24 ára gamli Gosling kom til Newcastle frá Everton fyrir fjórum árum en hann náði einungis að leika 36 leiki með liðinu.

Meiðsli settu oft strik í reikninginn hjá Gosling en hann var í láni hjá Blackpool hluta af síðasta tímabili.