16.05.14 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Hjulmand tekur við Mainz (Staðfest)

Kasper Hjulmand á fréttamannafundi.

Mynd: Getty Images

Kasper Hjulmand á fréttamannafundi.

Mynd: Getty Images

Kasper Hjulmand hefur verið ráðinn nýr þjálfari þýska liðsins Mainz en hann hefur undanfarin ár þjálfað Nordsjælland í Danmörku.
Ólafur Kristjánsson mun taka við þjálfun Nordsjælland um mánaðamótin eins og allir vita.

Thomas Tuchel þjálfaði Mainz en sagði upp.
Í tilkynningu Mainz er sagt að Hjulmand passi fullkomlega fyrir félagið, ekki síst fyrir að aðhyllast sóknarsinnaðan leikstíl.
Mainz lauk keppni í þýsku úrvalsdeildinni í 7. sæti og tekur þátt í forkeppni Evrópudeildarinnar.