Fotbolti.net
16.05.14 - 11:04
Daníel Freyr Jónsson

Lionel Messi framlengir við Barcelona (Staðfest)

Lionel Messi.

Lionel Messi.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona hefur gefið út tilkynningu þess efnis að Argentínumaðurinn Lionel Messi hafi samþykkt nýjan samning hjá félaginu.
Þar með er bundinn endir á mikinn orðróm um að þessi frábæri knattspyrnumaður gæti verið á förum frá félaginu í sumar.

Messi hefur undanfarin ár verið besti leikmaður heims. Hann náði sér hinsvegar ekki á strik í vetur miðað við fyrri tímabil og var orðrómur um að hann væri óánægður í herbúðum Barcelona.

Í stuttri tilkynningu frá félaginu nú í morgun kemur fram að Messi hafi samþykkt endurnýjaðan samning frá félaginu. Ekki kemur fram um hve langan samning er að ræða.

Er þetta sjöundu undirskrift Messi á nýjum samning hjá Katalóníufélaginu á síðustu 10 árum.

Heimild: Heimasíða Barcelona

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.