16.05.16 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sex nýir leikmenn í Þrótt Vogum (Staðfest)

Hilmar Þór Hilmarsson.

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson

Hilmar Þór Hilmarsson.

Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Þróttur Vogum fékk sex nýja leikmenn í sínar raðir áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti.
Vinstri bakvörðurinn Hilmar Þór Hilmarsson er kominn til Þróttar á láni frá Fram.
Hilmar Þór lék með Gróttu í 1.deildinni síðasta sumar en hann hefur einnig leikið með Stjörnunni, Fjölni, Keflavík, Víkingi Ó. og Álftanesi.
Hann fékk leyfi til að fara frá Fram á láni eftir að Sam Tillen kom til félagsins á dögunum.

Þróttarar hafa einnig fengið framherjann Elvar Frey Arnþórsson frá Aftureldingu og miðjumanninn Jón Tómas Rúnarsson frá ÍR.
Sindri Jónsson og Arnar Þór Tómasson koma til Þróttar á láni frá Haukum og Arnar Steinn Hansson kemur frá Skínanda.
Þrótturum er spáð 4. sætinu í 3. deildinni í sumar en liðið fær Dalvík/Reyni í heimsókn í fyrsta leik sumarsins í dag klukkan 16.