Fotbolti.net
16.05.16 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Andri Steinn og Valur Fannar í Vatnaliljur (Staðfest)

Valur Fannar Gíslason.

Valur Fannar Gíslason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Vatnaliljur úr fjórðu deild hafa fengið reynsluboltana Val Fannar Gíslason og Andra Stein Birgisson til liðs við sig.

Hinn 38 ára gamli Valur Fannar spilaði síðast einn leik með Haukum árið 2012 en þar áður var hann hjá Fylki í áraraðir.
Andri Steinn er annað árið í röð þjálfari hjá Þrótti Vogum en hann spilaði þar áður með Haukum í 1. deildinni.

Þessi 32 ára gamli miðjumaður mun þjálfa Þrótt í 3. deildinni í sumar og spila með Vatnaliljum deild neðar.

Keppni í 4. deildinni hefst á morgun en Vatnaliljur heimsækja þá KH á Hlíðarenda.
Andri Steinn Birgisson.

Andri Steinn Birgisson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.