Fotbolti.net
16.05.16 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi

Stjarnan lánar Snorra Pál í Gróttu (Staðfest)

Snorri Páll Blöndal hefur verið lánaður til Gróttu.

Snorri Páll Blöndal hefur verið lánaður til Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grótta hefur fengið miðjumanninn Snorra Pál Blöndal á láni frá Stjörnunni, en hann skrifaði nýlega undir tveggja ára samning við Garðabæjarfélagið.

Snorri Páll er fæddur árið 1994 og hefur spilað 15 leiki fyrir Stjörnuna í Pepsi-deild karla. Á heimasíðu Gróttu kemur fram að Snorra sé ætlað að fylla í skarð miðjumannsins Ásgeirs Arons Ásgeirssonar, sem meiddist illa nýverið.
„Snorri verður góð viðbót í leikmannahóp Gróttu og væntum við mikils af honum,“ sagði Úlfur Blandon, þjálfari Gróttu við heimasíðu félagsins.



Snorri á að vera kominn með leikheimild með Gróttu fyrir útileik gegn Ægi í næstu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.