Fotbolti.net
16.05.22 - 21:31
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir Newcastle og Arsenal: Wilson bestur

Einkunnir Newcastle og Arsenal: Wilson bestur
Canon

Mynd: EPA

Callum Wilson var besti maður leiksins er Newcastle eyðilagði Meistaradeildarvonir Arsenal með því að vinna 2-0 á St James' Park í kvöld.
Wilson var í fyrsta sinn í byrjunarliði Newcastle síðan í desember og þakkaði traustið.

Hann var afar ógnandi í sóknarleiknum og átti þátt í báðum mörkunum en Wilson fær 8 fyrir frammistöðuna eins og þeir Bruno Guimaraes og Joelinton.

Vörn Arsenal fær 5 og voru fáir sem stóðu upp úr. Bukayo Saka var bestur í liði Arsenal með 7.

Newcastle: Dubravka (6), Krafth (6), Schar (6), Burn (6), Targett (6), Guimaraes (8), Longstaff (6), Joelinton (8), Almiron (7), Saint-Maximin (7), Wilson (8).
Varamenn: Lascelles (6), Murphy (6), Fraser (6), Gayle (6).

Arsenal: Ramsdale (5), Tomiyasu (5), White (5), Gabriel (5), Tavares (5), Elneny (6), Xhaka (6), Saka (7), Odegaard (6), Smith Rowe (5), Nketiah (6).
Varamenn: Cedric (6), Martinelli (6), Lacazette (6), Pepe (5).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.