Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. maí 2022 09:37
Elvar Geir Magnússon
Guðmundur Andri með nýja greiðslu og brotlenti á gervigrasinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Andri Tryggvason, sóknarleikmaður Vals, skartaði nýrri hárgreiðslu í leik Stjörnunnar og Vals í Bestu deildinni í gær. Greiðslan vakti athygli á samfélagsmiðlum.

„Var Guðmundur Andri að koma frá Tenerife?" skrifaði Gummi Ben á Twitter.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  0 Valur

Guðmundur Andri lenti í slysi í leiknum því hann féll illa á gervigrasið, rann eftir því og rispaðist á andliti.

Hann spilaði því stóran hluta leiksins með blóð og dágóðan skammt af vaselíni í andlitinu.

Hér má sjá myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók á leiknum í gær, leik sem Stjarnan vann á dramatískan hátt með marki í uppbótartíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner