16.06.14 - 22:49
Magnús Már Einarsson
Aron Jó fyrsti Íslendingurinn til að spila á HM (Staðfest)

Aron Jóhannsson.

Mynd: Getty Images

Aron Jóhannsson.

Mynd: Getty Images

Aron Jóhannsson varð í kvöld fyrsti Íslendingurinn til að spila á HM þegar hann kom inn á sem varamaður í leik Bandaríkjanna og Gana.
Jozy Altidore tognaði aftan í læri og Aron kom inn á fyrir hann á 23. mínútu leiksins.
Aron fæddist í Bandaríkjunum og ákvað í fyrra að leika fyrir hönd bandaríska landsliðsins frekar en þess íslenska.
Nánast allan sinn feril í yngri flokkunum spilaði Aron með Fjölni í Grafarvogi og þar steig hann sín fyrstu skref í meistaraflokki áður en danska félagið AGF keypti hann árið 2011.

Í fyrra keypti hollenska félagið AZ Alkmaar síðan Aron í sínar raðir.
Aron á eflaust eftir að koma talsvert meira við sögu á HM en Bandaríkjamenn mæta Portúgal á sunnudag og Þýskalandi í næstu viku.
Staðan í hálfleik í leik Gana og Bandaríkjanna er 1-0 fyrir Bandaríkjamönnum en Clint Dempsey skoraði markið á fyrstu mínútu leiksins.

Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.