16.06.14 - 18:02
Alexander Freyr Tamimi
Ivan Rakitic í Barcelona (Staðfest)

Rakitic er orðinn leikmaður Barcelona.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rakitic er orðinn leikmaður Barcelona.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Barcelona hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Ivan Rakitic, en hann kemur til liðsins frá Sevilla.
Króatíski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við Barcelona um nokkurt skeið og hafa Katalóníurisarnir nú klófest undirskrift hans. Skrifaði hann undir fimm ára samning.
Rakitic, sem er nú staddur í Brasilíu á heimsmeistaramótinu með króatíska landsliðinu, var einn af bestu miðjumönnum spænsku La Liga á síðustu leiktíð.
Rakitic lék 117 deildarleiki fyrir Sevilla á árunum 2011 til 2014, en hann er uppalinn í Sviss.