Fotbolti.net
16.06.14 - 15:12
Grímur Már Þórólfsson

Koeman ráðinn stjóri Southampton (Staðfest)

Ronald Koeman er tekinn við Southampton.

Ronald Koeman er tekinn við Southampton.

Canon

Mynd: Getty Images

Ronald Koeman sem hætti sem þjálfari Feyenoord að loknu yfirstöðnu tímabili hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Southampton.

Hinn 51 árs gamli Ronald Koeman er sagður hafa skrifað undir þriggja ára samning við dýrlingana og verður bróðir hans Erwin Koeman honum til aðstoðar.

Auk þess að hafa þjálfað Feyenoord hefur Koeman stjórnað liðum á borð við Ajax, Benfica, PSV og Valencia áður en að hann tók við Feyenoord árið 2011.
Koeman vann deildina með Ajax árið 2002 og með PSV árið 2007. Þá vann hann spænska konungsbikarinn með Valencia árið 2008.

Fyrsta verkefni Koeman sem þjálfari Southampton verður að reyna að halda núverandi leikmönnum Southampton hjá félaginu, þá helst þeim Adam Lallana, Luke Shaw og Jay Rodriguez.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.