Fotbolti.net
16.06.20 - 20:38
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland: Bayern München meistari áttunda árið í röð (Staðfest)

Robert Lewandowski og Jerome Boateng fagna marki pólska framherjans

Robert Lewandowski og Jerome Boateng fagna marki pólska framherjans

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Bayern München er meistari áttunda árið í röð eftir 1-0 sigur á Werder Bremen í kvöld en aðeins tvær umferðir eru eftir af deildinni.
Robert Lewandowski gerði eina mark Bayern í sigrinum á Bremen í dag. Hann gerði það eftir laglega sendingu Jerome Boateng en leikmenn Bremen reyndu að spila Lewandowski rangstæðan. Það gekk þó ekki eftir og staðan 1-0 fyrir Bayern.

Þegar aðeins ellefu mínútur voru eftir af leiknum og stutt í titilfögnuð þá var Alphonso Davies rekinn af velli með sitt annað gula spjald og þar með rautt. Súrsætt augnablik hjá kanadíska landsliðsmanninum.

Bayern var að vinna deildina áttunda árið í röð og hafði liðið unnið alla leiki sína eftir að deildin fór aftur af stað eftir að kórónaveiran herjaði allan heiminn. Bayern er með 76 stig, tíu stigum meira en Dortmund sem á leik inni og því ljóst að ekkert lið getur náð Bayern.

Þetta er jafnframt 30. deildaritill Bayern en Borussia Dortmund veitti liðinu harða samkeppni. Sigur Bayern á Dortmund þann 26. maí var úrslitavaldur í titilbaráttunni.

Í öðrum leikjum kvöldsins var nóg um að vera. Samúel Kári Friðjónsson sat allan tímann á bekknum er Paderborn tapaði fyrir Union Berlin, 1-0. Freiburg vann þá Herthu Berlín 2-1

Úrslit og markaskorarar:

Werder 0 - 1 Bayern
0-1 Robert Lewandowski ('43 )
Rautt spjald: Alphonso Davies, Bayern ('79)

Freiburg 2 - 1 Hertha
1-0 Vincenzo Grifo ('61 )
1-1 Vedad Ibisevic ('66 , víti)
2-1 Nils Petersen ('71 )

Union Berlin 1 - 0 Paderborn
0-1 Ben Zolinski ('27 , sjálfsmark)

Leikmenn Bayern München klöppuðu eftir leikinn

Leikmenn Bayern München klöppuðu eftir leikinn

Canon

Mynd: Getty Images

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern9+2021
2Dortmund9+921
3Freiburg9+1019
4RB Leipzig9+1418
5Leverkusen9+316
6Werder9+215
7Elversberg9-113
8Stuttgart9012
9Hoffenheim9-112
10Frankfurt9-512
11Hamburger9-1012
12Mainz9-110
13Paderborn9-310
14Augsburg909
15Köln9-49
16Union Berlin9-147
17Schalke 049-66
18Gladbach9-134
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.