16.06.20 - 22:44
Brynjar Ingi Erluson
Helgi Þór Jónsson aftur í Keflavík (Staðfest)

Helgi Þór og Jónas Guðni Sævarsson, framkvæmdastjóri Keflavíkur

Mynd: Heimasíða Keflavíkur

Knattspyrnudeild Keflavíkur tilkynnti í kvöld samning við Helga Þór Jónsson en hann kemur aftur til félagsins frá Víði. Hann gerir tveggja ára samning.
Helgi Þór, sem er fæddur árið 1994, er uppalinn í Víði en gekk til liðs við Keflavík árið 2008 og lék með yngri flokkum félagsins auk þess sem hann spilaði með Njarðvík.
Hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Víði árið 2013 og lék með liðinu í 3. deildinni til ársins 2018 er hann ákvað að semja við Njarðvík og spila í Inkasso-deildinni.
Helgi spilaði síðari hluta tímabilsins með Keflavík í Pepsi-deildinni þar sem hann spilaði 5 leiki og skoraði 1 mark.
Hann fór aftur í Víði og lék með liðinu í 2. deild á síðustu leiktíð þar sem hann gerði 11 mörk í 21 leik en er nú aftur mættur til Keflavíkur og mun spila þar næstu tvö árin.
Helgi verður kominn með leikheimild fyrir fyrsta leikinn gegn Aftureldingu í Lengjudeildinni á föstudag.