Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mið 16. júní 2021 15:14
Hafliði Breiðfjörð
Eiður fékk skriflega áminningu og fer í tímabundið leyfi
Eiður Smári og Guðni Bergsson formaður KSÍ.
Eiður Smári og Guðni Bergsson formaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins sendu frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þar sem fram kemur að Eiður Smári hafi fengið skriflega áminningu frá sambandinu og fari nú í tímabundið leyfi fram á haustið.

Eiður Smári komst í umræðuna um helgina þegar myndband af honum á næturlífi borgarinnar komst í dreifingu þar sem hann var ölvaður að kasta af sér vatni á Ingólfstorgi. Það kom í kjölfar umræðu um að hann hafi verið undir áhrifum í umræðuþætti um enska boltann í Sjónvarpi Símans í mars.

Í yfirlýsingunni kemur fram að hann ætli að leita sér hjálpar og Eiður Smári segist sjálfur ætla að taka á sínum persónulegu málum. Yfirlýsinguna má sjá að neðan.

Frá KSÍ
„Vegna umfjöllunar um Eið Smára Guðjohnsen vill KSÍ koma því á framfæri að málefni hans hafa verið í viðeigandi farvegi hjá KSÍ. "

„Eiður Smári hefur fengið skriflega áminningu í tengslum við starfsskyldur sínar hjá KSÍ og fer nú í tímabundið leyfi frá störfum, en mun snúa aftur af fullum krafti með landsliðinu í verkefnum haustsins. KSÍ lýsir yfir stuðningi við Eið Smára og hans ákvörðun um að leita sér hjálpar og óskar honum alls hins besta."


Frá Eiði Smára Guðjohnsen:

„Ábyrgðin liggur hjá mér.

Ég hef alla tíð reynt af bestu getu að uppfylla það að vera fyrirmynd.

Það hlutverk kom til mín og fylgdi sennilega velgengni minni á knattspyrnuvellinum.

Það að vera fyrirmynd þýðir ekki að ég sé fullkominn, ég er mannlegur. Stundum tökum við rangar ákvarðanir, sýnum af okkur dómgreindarleysi og gerum mistök, og þá sérstaklega þegar áfengi spilar inn í. Á lífsleið okkar þurfum við öll að taka á ýmsum persónulegum málum, og ég mun svo sannarlega taka á mínum.

Alltaf einn af ykkur, Eiður Smári.“

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner