FH mætir Rosenborg í 2. umferð Sambandsdeildarinnar, Conference League, ef liðið vinnur Sligo Rovers í 1. umferð keppninnar. FH mun leika fyrri leikinn gegn Rosenborg á heimavelli.
Fyrsta umferðin fer fram dagana 8. og 15. júlí.
Fyrsta umferðin fer fram dagana 8. og 15. júlí.
Stjarnan og Breiðablik taka einnig þátt í 1. umferð og er ljóst hvaða liðum þau mæta í 2. umferð.
Breiðablik mætir liði Austria Vín ef Blikar sigra einvígi sitt gegn Racing FC Union frá Lúxemborg í fyrstu umferð. Blikar munu byrja á útivelli í 2. umferð ef þeir fara áfram úr 1. umferð.
Stjarnan mætir þá F91 Dudelange frá Lúxemborg ef liðið slær út írska liðið Bohemian í fyrstu umferð. Stjarnan mun byrja á útivelli í 2. umferð ef liðið fer áfram úr 1. umferð.
Athugasemdir