Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Mjög þakklátur stuðningsmönnum og útskýrir af hverju Valgeir fór ekki af velli
Kallaði eftir að menn yrðu beinskeyttari og fékk það í gegn.
Kallaði eftir að menn yrðu beinskeyttari og fékk það í gegn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmenn Breiðabliks. (ekki frá leiknum í gær)
Stuðningsmenn Breiðabliks. (ekki frá leiknum í gær)
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Valgeir og Arnór Gauti fengu gul spjöld í fyrri hálfleik.
Valgeir og Arnór Gauti fengu gul spjöld í fyrri hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Eins manns her'
'Eins manns her'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blikar eru á toppnum sem stendur.
Blikar eru á toppnum sem stendur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vann öflugan 0-2 sigur á ÍBV í gær en spilað var á Þórsvelli í Vestmannaeyjum. Með sigrinum komst Breiðablik á toppinn

Fótbolti.net ræddi við Halldór Árnason, þjálfara Breiðabliks, í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  2 Breiðablik

„Ég var hrikalega ánægður með hugarfarið sem menn mættu með í mjög krefjandi aðstæður í Vestmannaeyjum. Ég er mjög ánægður með að menn fylgdu leikplaninu alla leið, það krafðist þess að menn voru minna með boltann að senda á milli sín en við erum vanir og beinskeyttari. Við gerðum það allan leikinn, pressuðum mjög hátt, gáfum fá færi á okkur og bjuggum okkur til nægilega margar stöður til að klára leikinn," segir Dóri.

Dýrmætur stuðningur
„Ég var hrikalega ánægður með þessa hundruð stuðningsmanna Breiðabliks sem mættu til Vestmannaeyja með Kópacabana í fararbroddi. Í svona leik, þegar það er heitt, sól, þurr völlur og tiltölulega fáir á vellinum heilt yfir, þá eiga menn til að sofna á verðinum. Stuðningurinn hjálpaði okkur að halda upp orkustiginu, það var mjög mikilvægt og ég er mjög ánægður með það."

„Heilt yfir var þetta góður dagur, mjög erfiður völlur og ÍBV erfitt lið að spila við; hvort sem það er á grasi eða gervigrasi. ÍBV hefur gert vel í sumar. Ég er ánægður með frammistöðuna og hvernig aðlöguðumst krefjandi aðstæðum."


Kom þér á óvart hversu margir stuðningsmenn mættu?

„Maður var búinn að heyra af því í aðdraganda leiksins að það stæði til að Blikar myndu fjölmenna. Pæjumótið var um helgina og einhverjir urðu eftir, einhverjir að spila golf og svo gerði hellingur af fólki sér ferð til að styðja okkur. Við vissum af því og það hjálpaði okkur í undirbúningnum að vita það að fólk væri að gera sér ferð til Vestmannaeyja til að styðja okkur. Það er mjög dýrmætt."

Ákvað að láta þá báða klára leikinn þrátt fyrir gul spjöld
Það vakti athygli að þú tókst ekki Valgeir Valgeirsson af velli á gulu spjaldi. Varstu að íhuga það eftir að hann braut af sér á spjaldi?

„Já, ég íhugaði það. Ég talaði við hann nokkrum sinnum. Ég íhugaði samt meira að taka Arnór Gauta (Jónsson) út af. Þetta eru ungir menn og þeir gera mistök og taka ákvarðanir sem hafa afleiðingar. Ef menn geta notað það til að læra af, þroskast og þróast, þá er það mjög jákvætt. Arnór Gauti brýtur af sér í Skagaleiknum, togar í mann í fyrri hálfleik sem var ekki hættulegur og fær gult spjald. Hann var meðvitaður um að mega ekki fá annað komandi inn í seinni hálfleikinn en var búinn að toga aftur eftir nokkrar mínútur og fékk rautt. Það er bara hlutur sem við notum til að læra af."

„Einfalda leiðin, örugga leiðin, hefði verið að taka þá út af, en Valgeir eða Gauti hefðu ekki lært neitt af því. Þeir þurftu að læra af því í þessum leik; læra að spila í svona baráttuleik á spjaldi, spila sinn leik án þess að fá annað spjald. Þeir gerðu það mjög vel. Brotin hjá Valgeiri á spjaldi voru mjög 'soft' og mér fannst hann aldrei tæpur á að fá seinna spjaldið. Hrós á báða fyrir að halda sér inn á, áttu báðir hrikalega góðan leik og eru mjög mikilvægir fyrir okkur."

„Auðvitað hugsar maður þetta alltaf, en maður verður bara að vega og meta út frá svo mörgum þáttum. Það er ekki alltaf gott að taka bara auðveldu ákvörðunina, held að það hafi verið mjög gott fyrir þá báða að klára leikinn."


Vantar oft í leik Breiðabliks
Dóri var ánægður með mörkin sem liðið skoraði.

„Mjög ánægður, í báðum tilfellum vinnum við boltann eftir agressífa pressu. Gústi (Ágúst Orri Þorsteinsson) var eins manns her í fyrra markinu, vinnur sjálfur boltann og keyrir með hann frá eigin vallarhelmingi og þetta endar inni. Í seinni markinu vinnum við hann í liðspressu, erum fljótir að spila boltanum fram á við út úr pressunni, keyrum af stað."

„Það kannski vantar oft í okkar leik, í fullkomleika fagurfræðinnar sem mikið af mínum leikmönnum aðhyllast, þá vilja menn taka boltann niður og helst leyfa andstæðingnum að komast í varnarformið sitt og byrja þá að brjóta þá á bak aftur með pensilinn einan að vopni. Ég kallaði eftir því að við yrðum beinskeyttari og ég er mjög ánægður með hvernig það gekk,"
segir Dóri.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 11 7 1 3 19 - 16 +3 22
2.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
3.    Vestri 11 6 1 4 13 - 7 +6 19
4.    Valur 11 5 3 3 24 - 16 +8 18
5.    Stjarnan 11 5 2 4 20 - 20 0 17
6.    Fram 11 5 0 6 18 - 17 +1 15
7.    Afturelding 11 4 2 5 12 - 14 -2 14
8.    ÍBV 11 4 2 5 12 - 17 -5 14
9.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
10.    KA 11 3 3 5 10 - 18 -8 12
11.    FH 11 3 2 6 15 - 16 -1 11
12.    ÍA 11 3 0 8 13 - 28 -15 9
Athugasemdir