Fotbolti.net
16.06.26 - 19:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Martraðarbyrjun fyrir Jón Þór

Jón Þór getur ekki verið sáttur með þessa byrjun.

Jón Þór getur ekki verið sáttur með þessa byrjun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er óhætt að segja að Jón Þór Hauksson hafi fengið martraðarbyrjun sem þjálfari Stjörnunnar.

Jón Þór er að stýra sínum fyrsta leik eftir að hann tók við Stjörnunni um síðasta helgi en nágrannarnir í Breiðabliki eru í heimsókn.
Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 4 Breiðablik
Það voru ekki nema sex mínútur búnar af leiknum þegar staðan var orðin 0-2 fyrir gestunum úr Kópavogi.

Viktor Karl Einarsson kom Blikum yfir á fimmtu mínútu og nokkrum sekúndum síðar bætti Aron Bjarnason við marki. „Líklega ekki byrjunin sem Jón Þór óskaði sér," skrifaði Ívar Björgvinsson í beinni textalýsingu frá leiknum og er vel hægt að taka undir það.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.