Fotbolti.net
16.07.13 - 17:00
Magnús Már Einarsson

Birkir Pálsson tekur við Hetti (Staðfest)

Birkir Pálsson tekur við Hetti (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Pálsson hefur verið ráðinn þjálfari Hattar út þetta tímabil.
Birkir, sem leikur í vörn Hattar, var ráðinn tímabundið þjálfari hjá liðinu eftir að Eysteini Húna Haukssyni var sagt upp störfum í síðustu viku.

Um helgina gerði Höttur 2-2 jafntefli gegn HK á útivelli undir stjórn Birkis.

Birkir hefur nú verið ráðinn þjálfari út tímabilið en Tómas Arnar Emilsson verður honum til aðstoðar.

Höttur er í botnsæti 2. deildar með fjögur stig en næsti leikur liðsins er gegn Ægi á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.