16.07.13 - 15:47
Daníel Freyr Jónsson
Edinson Cavani til PSG (Staðfest)

Edinson Cavani.

Mynd: Getty Images

Edinson Cavani.

Mynd: Getty Images
Úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani er genginn í raðir Frakklandsmeistara PSG frá Napoli fyrir 54 milljónir punda.
Cavani skrifaði undir fimm ára samning hjá PSG og var hann kynntur til sögunnar á blaðamannafundi nú seinnipartinn. Er hann fyrsti leikmaðurinn sem Laurent Blanc, nýráðin stjóri PSG, kaupir til félagsins.
Hjá PSG hittir Cavani sinn fyrrum samherja frá Napoli, Ezequiel Lavezzi, sem fyrir ári síðan fór sömu leið.
Alls skoraði þessi mikla markamaskína 78 mörk í 104 leikjum með Napoli. Hann kom til Napoli frá Palermo árið 2010, en þar hafði hann skorað 34 mörk á þriggja ára tímabili.