Fotbolti.net
16.07.13 - 20:03
Magnús Már Einarsson

Eggert Gunnþór til Belenenses (Staðfest)

Eggert Gunnþór til Belenenses (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eggert Gunnþór Jónsson hefur gengið til liðs við portúgalska félagið Belenenses en þetta staðfesti Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður hans við 433.is.

Eggert Gunnþór losnaði undan samningi hjá Wolves á dögunum og hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning við Belenenses.
Helgi Valur Daníelsson gekk einnig í raðir Belenenses og því verða tveir íslenskir miðjumenn hjá félaginu á næsta tímabili.

Þeir verða fyrstu Íslendingarnir til að spila í portúgölsku úrvalsdeildinni en Belenenses tryggði sér sæti í deildinni síðastliðið vor.

Þá hefur Belenenses einnig spurst fyrir um Sverri Inga Ingason varnarmann Breiðabliks.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.