Fotbolti.net
16.07.16 - 09:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

AZ keypti Friday á föstudegi (Staðfest)

Fred Friday í leik með Lilleström.

Fred Friday í leik með Lilleström.

Canon

Mynd: Getty Images

Fred Friday er farinn til hollenska félagsins AZ Alkmaar en hann var keyptur af Rúnari Kristinssyni og félögum í Lilleström.
Hollenska félagið fagnaði á Twitter með að biðja stuðningsmenn sína um að merkja tístin sín #FridayFeeling eða föstudagsgír.

Friday verður mikill missir fyrir Rúnar en var búinn að skora átta mörk í 14 leikjum í norsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.

Hann á að koma í stað Vincent Janssen sem á dögunum gékk til liðs við Tottenham en hann var markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.

Fred Friday heeft getekend! #welkomFred #FridayFeeling #AZ pic.twitter.com/wemBliVR4A

— AZ (@AZAlkmaar) July 15, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.