16.07.16 - 14:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emanuele Giaccherini til Napoli (Staðfest)

Giaccherini er kominn heim til Ítalíu

Mynd: Getty Images

Giaccherini er kominn heim til Ítalíu

Mynd: Getty Images
<a href=\"http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=story&id=211802&preview=1\" target=\"_blank\">Við greindum frá því fyrr í dag að Emanuele Giaccherini væri á leiðinni til Napoli</a> og nú er staðfest sviginn mættur.
Giaccherini kemur til ítalska liðsins frá Sunderland, en kaupverðið er talið vera í kringum 2 milljónir punda. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Napoli.
Hinn 31 árs gamli Giaccherini var í láni hjá Bologna á síðasta og er nú mættur aftur til Ítalíu.
Sunderland borgaði 6,5 milljónir punda fyrir hann árið 2013, en hjá félaginu byrjaði hann aðeins 18 deildarleiki á tveimur árum.
Giaccherini á 29 landsleiki að baki og var meðal annars lykilmaður í liði Ítala á EM í Frakklandi. Hann skoraði á móti Belgum í fyrsta leik og átti mjög sterkt mót heilt yfir.
Nú er hann búinn að skrifa undir samning hjá Napoli. Þetta er fimmta félagið sem hann mun spila fyrir á Ítalíu, en áður spilaði hann með Bologna, Juventus, Pavia og Cesena.

Heimild: BBC