Fotbolti.net
16.07.16 - 22:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Franco Vasquez til Sevilla (Staðfest)

Franco Vasquez er búinn að semja við Sevilla

Franco Vasquez er búinn að semja við Sevilla

Canon

Mynd: Getty Images

Sevilla er búið að komast að samkomulagi við Palermo á Ítalíu um kaup á sóknarsinnaða miðjumannnum Franco Vasquez.

Vasquez, sem á tvo landsleiki fyrir Ítalíu, skrifaði undir fimm ára samning við Sevilla, en kaupverðið er talið nema 15 milljónum evra.
Ever Banega fór til Inter Milan og því vildi Sevilla fá mann til þess að auka sköpunargetuna á miðjunni Vasquez er væntanlega sá maður.

Hinn 27 ára gamli Vasquez er farinn til Orlando að hitta nýju liðsfélagana sína, en Sevilla vann baráttu við lið í ensku úrvalsdeildinni sem og lið í Seríu A um hann.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Sevilla kaupir í sumar, en áður höfðu Pablo Sarabia, Hiroshi Kiyotake, Matías Kranvitter og Joaquín Correa.

Acuerdo con la Us Palermo para el traspaso de @mudo_vazquez #SevillaFC https://t.co/r7NxGqZqsP pic.twitter.com/1xd8I5JNEs

— Sevilla Fútbol Club (@SevillaFC) July 16, 2016

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.