16.07.22 - 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Breel Embolo seldur til Mónakó (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
AS Monaco er búið að festa kaup á sóknarmanninum Breel Embolo sem getur einnig leikið úti á hægri kanti.
Mónakó borgar tæpar 13 milljónir evra fyrir þennan svissneska landsliðsmann með 56 leiki að baki fyrir þjóð sína.
Embolo er 25 ára gamall og þótti á sínum tíma gríðarlega mikið efni. Hann skoraði 11 mörk í 31 leik á síðustu leiktíð hjá Borussia Mönchengladbach sem neyddist til að selja sóknarmanninn því hann átti aðeins eitt ár eftir af samningnum við félagið.
Embolo er annar leikmaðurinn til að ganga í raðir Mónakó í sumar eftir að félagið keypti Takumi Minamino frá Liverpool.
Mónakó endaði í þriðja sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tekur því þátt í Meistaradeildinni í haust.
