16.07.22 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson
Tijana Krstic til Fylkis (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tijana Krstic, varnarmaður frá Serbíu fædd 1995, mun leika með Fylki út sumarið á lánssamningi frá KR.
Tijana á 62 leiki að baki með KR en hefur aðeins spilað þrjá leiki í Bestu deildinni í sumar.
Tijana er fjölhæfur varnarmaður sem getur leyst allar stöður í vörninni og á 24 landsleiki að baki fyrir Serbíu.
Hún gæti reynst mikill liðsstyrkur fyrir Fylki sem hefur átt slakt tímabil og er rétt fyrir ofan fallbaráttu Lengjudeildarinnar með 8 stig eftir 9 umferðir.
„Bjóðum Tijönu hjartanlega velkomna í Árbæinn og þökkum við KR fyrir góð samskipti í kringum félagsskiptin," segir í yfirlýsingu Fylkis.
