Fotbolti.net
16.07.22 - 08:20
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Toronto búið að krækja í Bernardeschi (Staðfest)

Næstbesti leikmaður deildarinnar?

Toronto búið að krækja í Bernardeschi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kanadíska félagið Toronto FC er búið að tryggja sér ítalska kantmanninn Federico Bernardeschi á frjálsri sölu frá Juventus.

Bernardeschi er 28 ára gamall og gæti reynst einn af bestu leikmönnum MLS deildarinnar þar sem hann býr yfir góðri reynslu úr hæsta gæðaflokki evrópska boltans.

Utan þess að eiga 39 leiki að baki fyrir ítalska landsliðið hefur Bernardeschi komið við sögu í 183 leikjum á fimm árum hjá Juventus. Á þeim tíma hefur honum aðeins tekist að skora 12 sinnum og gefa 24 stoðsendingar.

Hann braust út í sviðsljósið með Fiorentina þar sem hann skoraði 14 mörk í 42 leikjum á tímabilinu áður en hann var keyptur til Juve fyrir 40 milljónir evra sumarið 2017.

Það er með sanni hægt að segja að Bernardeschi hafi ekki staðist væntingar hjá Juve en gæði hans eru þó óumdeilanleg. Hann kemur yfirleitt inn af bekknum og það hjálpar hvað hann er fjölhæfur og getur spilað á báðum köntum og í holunni fyrir aftan fremsta mann þrátt fyrir að vera örvfættur hægri kantmaður að upplagi.

Hjá Toronto hittir Bernardeschi samlanda sína Domenico Criscito og Lorenzo Insigne, sem er mögulega gæðamesti leikmaður MLS deildarinnar í dag.

Toronto hefur gengið hrikalega illa á tímabilinu og tími kominn til að styrkja hópinn. Liðið er aðeins með 19 stig eftir 20 umferðir en sem betur fer fyrir ítölsku stjörnurnar geta félög ekki fallið úr deildinni.

Bernardeschi getur ekki byrjað að spila strax þar sem hann á eftir að fá atvinnuleyfi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.