16.08.14 - 12:50
Eyþór Ernir Oddsson
Victor Moses til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Victor Moses, framherji Chelsea, hefur skrifað undir eins árs lánssamning við Stoke City en þetta staðfesti Stoke á Twitter síðu félagsins í dag.
Moses er 23 ára og hefur átt í erfiðleikum eftir að hann gekk til liðs við Chelsea frá Wigan árið 2012 en hann eyddi síðasta ári sínu á láni hjá Liverpool þar sem hann skoraði aðeins tvö mörk í sex leikjum hans í byrjunarliði.
Talið er að Stoke muni reyna að fá Oussama Assaidi frá Liverpool, en hann lék á láni hjá félaginu á seinustu leiktíð.
Þá staðfesti Mark Hughes knattspyrnustjóri Stoke áhuga sinn á að fá Nathan Redmond frá Norwich City fyrr í vikunni en hann virðist þó ætla að treysta á Moses.