Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 16. ágúst 2019 14:45
Magnús Már Einarsson
Alaba kallar eftir því að Bayern styrki hópinn
Mynd: Getty Images
David Alaba, leikmaður Bayern Munchen, hefur kallað eftir því að félagið fái liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar 2. september.

Bayern hefur misst lykilmenn eins og Arjen Robben, Franck Ribery og Mats Hummels síðan á síðasta tímabili. Ivan Perisic kom til Bayern á láni frá Inter í síðustu viku en Alaba vill fá meiri liðsstyrk.

„Tímabilið er langt og við þurfum ekki bara að hafa gæði í hópnum heldur þurfum við líka að hafa stóran hóp," sagði Alaba.

„Ég tel að við þurfum einn eða tvo leikmenn í viðbót til að auka samkeppnina og vera vel settir með breiddina í hópnum."

Bayern Munchen hefur titilvörn sína í Þýskalandi gegn Hertha Berlin í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner