Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 16. ágúst 2019 23:10
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu magnað sigurmark Aritz Aduriz gegn Barcelona
Mynd: Getty Images
Hinn 38 ára gamli Aritz Aduriz, sem verður 39 ára í febrúar, gerði eina mark leiksins er Athletic Bilbao lagði Spánarmeistara Barcelona að velli í fyrstu umferð efstu deildar þar í landi.

Lionel Messi var ekki í hópi Börsunga vegna meiðsla og þurfti Luis Suarez að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik.

Aritz Aduriz kom inn á 88. mínútu og skoraði mínútu síðar, með sinni fyrstu snertingu.

Markið var ekki af verri endanum þar sem hann skoraði með glæsilegri klippu, sem er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Aduriz varð um leið annar leikmaðurinn í sögu spænska boltans til að skora 15 tímabil í röð í efstu deild, eftir Lionel Messi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner