Fotbolti.net
16.08.20 - 10:54
Ívan Guðjón Baldursson

Celta fær Baeza frá Real Madrid (Staðfest)

Celta fær Baeza frá Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celta Vigo er búið að staðfesta komu Miguel Baeza Perez úr unglingaliði Real Madrid.
Baeza er tvítugur framherji sem getur leikið fyrir aftan sóknarmennina og á báðum vængjum.

Hann hefur verið að gera frábæra hluti með varaliði Real Madrid og borgar Celta 2,5 milljónir evra til að tryggja sér þjónustu hans.

Real mun þó fá 50% af upphæðinni þegar leikmaðurinn verður seldur næst. Díllinn er því ekki ósvipaður þeim þegar Mario Hermoso var seldur til Espanyol og þaðan til Atletico Madrid, en þá fékk Real 12,5 milljónir í kassann.

Baeza hefur skorað níu og lagt upp fjögur mörk í átján leikjum í C-deild spænska boltans. Spænska goðsögnin Raúl stýrir B-liði Real og hefur miklar mætur á Baeza.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.