Fotbolti.net
16.08.20 - 13:23
Ívan Guðjón Baldursson

Chong til Werder Bremen (Staðfest)

Chong til Werder Bremen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Werder Bremen er búið að staðfesta komu Tahith Chong til félagsins á lánssamningi út tímabilið.
Chong er tvítugur kantmaður frá Hollandi sem hefur verið á mála hjá Manchester United síðan 2016.

Hann byrjaði að æfa með Bremen áður en félagaskiptin gátu verið staðfest. Samningar voru ekki lengi að nást og verður áhugavert að fylgjast með Chong í þýska boltanum.

Bremen rétt slapp við fall á nýliðnu tímabili og hefur ekki mikinn pening til umráða vegna Covid-19 faraldursins. Það eru því miklar vonir bundnar við Chong, getur hann orðið enn eitt ungstirnið sem kemur frá Englandi og stendur sig vel í þýska boltanum?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.