16.08.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jeremy Ngakia í Watford (Staðfest)

Ngakia í leik með West Ham.

Mynd: Getty Images

Ngakia í leik með West Ham.

Mynd: Getty Images
Watford hefur krækt í varnarmaninn Jeremy Ngakia. Hann kemur á frjálsri sölu frá West Ham.
Ngakia er 19 ára gamall bakvörður sem spilaði fimm leiki með West Ham í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Hann tók ákvörðun að framlengja ekki við félagið.
Hann vakti líka áhuga Schalke í Þýskalandi en valdi að ganga í raðir Watford og er hann fyrsti leikmaðurinn sem semur við félagið eftir að það féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Serbinn Vladimir Ivic er tekinn við Watford og mun hann stýra liðinu í Championship-deildinni á komandi tímabili.