Fotbolti.net
16.08.21 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool lánar Ben Davies til Sheffield United (Staðfest)

Ben Davies er farinn á lán til Sheffield United

Ben Davies er farinn á lán til Sheffield United

Canon

Mynd: Heimasíða Sheffield United

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool staðfesti í kvöld að Ben Davies er farinn á lán til Sheffield United út þetta tímabil.
Davies er 26 ára gamall varnarmaður en hann var keyptur frá Preston North End í janúar.

Liverpool var í mikill krísu í vörninni vegna meiðsla hjá Virgil van Dijk, Joel Matip og Joe Gomez. Því var ákveðið að fá tvo varnarmenn í janúar en Özan Kabak kom einnig á láni frá Schalke.

Davies hefur ekki enn spilað leik fyrir Liverpool og mun ekki gera það á þessu tímabili þar sem hann verður á láni hjá Sheffield United út leiktíðina.

United féll úr úrvalsdeildinni í maí en félagið stefnir á að fara beint aftur upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.