16.08.26 - 09:00
Kári Snorrason
West Ham kaupir Engels á metfé (Staðfest)

Skrifar undir fimm ára samning við hamrana.

Mynd: West Ham

West Ham hefurfest kaup á belgíska miðjumanninum Arne Engels frá skosku meisturunum í Celtic.
Félagið greiðir 22 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem er hæsta upphæð sem félag í Championship deildinni hefur greitt fyrir leikmann.
Fyrra metið átti Ipswich Town, sem greiddi 17,5 milljónir punda fyrir norska framherjann Sindre Walle Egeli fyrir ári síðan.
West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni í maí og leikur því í fyrsta sinn í Championship deildinni síðan 2012. Liðið hefur leik í deildinni á sunnudaginn þegar það sækir Burnley heim.
Engels verður þó ekki löglegur til að spila í þeim leik. Hann gæti hins vegar þreytt frumraun sína í heimaleik gegn Charlton laugardaginn 22. ágúst.

A first chat with our boy from Belgium ?????
— West Ham United (@WestHam) August 15, 2026