Fotbolti.net
16.08.26 - 11:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Glódís vann Ofurbikarinn - Hafrún Rakel á skotskónum

Glódís vann Ofurbikarinn - Hafrún Rakel á skotskónum
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir vann þýska Ofurbikarinn með Bayern í gær þegar liðið vann Wolfsburg 3-0.
Bayern var með 2-0 forystu í hálfleik og þriðja markið kom strax í upphafi seinni hálfleiks. Glódís var tekin af velli á 54. mínútu, vonandi er ekki um meiðsli að ræða.

Þetta er þriðja árið í röð sem liðið vinnur Ofurbikarinn.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir var á skotskónum þegar Bröndby vann AGF 3-0 í dönsku deildinni í dag.

Hún skoraði annað mark liðsins eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Bröndby er í 4. sæti með fimm stig eftir þrjár umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.