mán 16. september 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zlatan: Bestur í sögu MLS og ég er ekki að grínast
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður Los Angeles Galaxy í MLS-deildinni, var hress og kátur eftir að hann skoraði þrennu í leik gegn Sporting Kansas City síðastliðna nótt.

Leikurinn endaði 7-2 og með þrennu sinni bætti Zlatan metið hjá Galaxy yfir flest mörk á einu tímabili.

Hann er kominn með 26 mörk í MLS á tímbilinu og hefur í heildina skorað 48 mörk í 51 leik í MLS-deildinni.

„Ég held sé besti leikmaður í sögu MLS og ég er ekki einu sinni að grínast," sagði Zlatan hógvær eftir leikinn gegn Sporting Kansas.

„Það er auðvelt að skora mörk, þú þarft bara að gera eins og Zlatan og þá koma þau."

La Galaxy er sem stendur í fimmta sæti Vesturdeildar MLS með 45 stig úr 30 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner