Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 16. september 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Er mögnuð manneskja og elskar félagið meira en nokkur annar"
Sergi Roberto.
Sergi Roberto.
Mynd: EPA
Miðvörðurinn Gerard Pique segist sár yfir því að baulað var á Sergi Roberto, liðsfélaga hans hjá Barcelona, í tapinu gegn Bayern München á þriðjudagskvöld.

Börsungar byrjuðu ágætlega en svo tók Bayern öll völd á vellinum. Lokatölur voru 3-0.

Það var ekki sérstök stemning á Nývangi, en það var baulað sérstaklega þegar einn ákveðinn leikmaður fór af velli; Sergi Roberto. Roberto átti ekki góðan leik fyrir Barcelona í hægri bakverðinum og var baulað þegar hann fór af velli.

Pique segist vera sár með hegðun stuðningsmanna Katalóníustórveldisins.

„Þetta særir mig mikið vegna þess að ég þekki hann vel. Hann er mögnuð manneskja og elskar félagið meira en nokkur annar," sagði Pique.

„Ég vil minna fólk á að hann er ekki bakvörður; hann er miðjumaður."

Sjá einnig:
Kvöld sem fer í sögubækurnar hjá Barcelona
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner