Fotbolti.net
16.10.13 - 18:56
Elvar Geir Magnússon

Almarr Ormarsson í KR (Staðfest)

Almarr Ormarsson í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða KR

Almarr Ormarsson gekk í dag til liðs við KR en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Almarr kemur til liðsins frá Fram en hann er uppalinn hjá KA.
Almarr gekk til liðs við Fram á miðju sumri 2008 og skoraði 54 mörk í 194 mótsleikjum með Frömurum. Hann skoraði tvisvar í úrslitaleiknum við Stjörnuna þegar Fram varð bikarmeistari í sumar.

Fyrsti leikur Almars í efstu deild var 2-0 sigur Fram á HK í Kópavogi 28. júlí 2008.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Íslandsmeistara KR síðan tímabilinu lauk.

Hann hefur verið lykilmaður hjá Fram sem hefur misst tvo öfluga leikmenn undanfarna daga. Kristinn Ingi Halldórsson gekk í raðir Vals og þá er óvissa um fleiri leikmenn, þar á meðal Sam Hewson sem sterklega hefur verið orðaður við FH.

Sjá einnig:
Almarr: Þurfti bara eitt símtal frá Rúnari
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.