Fotbolti.net
16.10.13 - 21:47
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Rami til Milan (Staðfest)

Rami til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Það er staðfest að franski varnarmaðurinn Adil Rami fer til Milan í janúar og er leikmaðurinn þegar byrjaður að æfa með ítalska félaginu.

Rami stóðst læknisskoðun í síðustu viku og hóf að æfa með félaginu skömmu síðar.
Rami hafði verið byrjunarliðsmaður hjá Valencia en eftir ummæli sín um þjálfara liðsins var ákveðið að leyfa honum að fara út á láni.

,,Valencia CF og AC Milan hafa komist að samkomulagi um félagsskipti Adil Rami til Mílanó í vetrarglugganum,\" stendur í yfirlýsingu frá Valencia.

,,Rami hefur fengið leyfi frá Valencia til að æfa með Milan áður en hann fer þangað á lánssamning.

,,Sé vilji fyrir hendi getur ítalska félagið keypt leikmanninn að tímabili loknu.\"

Talið er að samningsákvæði segi til um að kaupverð Rami verði að vera 7.5 milljónir evra.

Heimild: Football-Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.