16.10.14 - 18:48
Brynjar Ingi Erluson
Þorsteinn Halldórsson tekinn við kvennaliði Breiðabliks (Staðfest)

Þorsteinn Halldórsson er tekinn við kvennaliði Breiðabliks

Mynd: Breiðablik

Breiðablik hefur ráðið Þorstein Halldórsson sem nýjan þjálfara hjá meistaraflokki kvenna en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Þorsteinn er afar reyndur þjálfari en hann hefur þjálfað hjá KR, Þrótti og Haukum meðal annars.
Hann var aðalþjálfari hjá 2. flokki karla og í þjálfarateymi KR í sumar en þar hefur hann verið síðustu fimm árin.
Ólafur Pétursson verður honum til aðstoðar en hann hefur verið markmannsþjálfari bæði karla og kvennaliðsins undanfarin ár.
Breiðablik þakkar jafnframt Hlyni Svan og Kristrúnu Lilju fyrir góð störf undanfarin ár.