16.10.15 - 14:58
Magnús Már Einarsson
Edda Garðars tekur við KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Edda Garðarsdóttir hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR en hún hefur gert tveggja ára samning við félagið.
Edda tekur við af Björgvini Karli Gunnarssyni sem hefur gert góða hluti með KR síðan hann tók við liðinu í annað sinn árið 2013.
Björgvin kom KR upp í Pepsi-deildina og stýrði liðinu frá falli í sumar en KR endaði í 8. sæti þar.
Edda var aðstoðarþjálfari Björgvins á nýliðnu tímabili og hún hefur nú tekið við liðinu.
Edda varð sex sinnum Íslandsmeistari með kvennaliði KR og fjórum sinnum bikarmeistari, auk þess að verða bæði Íslands- og bikarmeistari með Breiðablik árið 2005.
Edda varð einnig bikarmeistari með Örebro í Svíþjóð þar sem hún lék í þrjú ár áður en hún tók hálft tímabil hjá Chelsea og hélt svo heim til að spila með Val.