Fotbolti.net
16.10.15 - 12:27
Hafliði Breiðfjörð

Einar Ottó tekur við Ægi (Staðfest)

Frá undirskriftinni.

Frá undirskriftinni.

Canon

Mynd: Ægir

Knattspyrnufélagið Ægir hefur komist að samkomulagi við Einar Ottó Antonsson um að taka við þjálfun meistarflokks karla næstu tvö tímabil.
Einar Ottó er fæddur 1984 og hefur leikið nánast allan sinn feril með Selfoss við góðan orðstír.

Hann hefur verið einn af lykilleikmönnum á Selfossi undanfarin ár en ætlar nú sölsa um og einbeita sér meira að þjálfun.

Einar Ottó er íþróttakennari og menntaður íþróttafræðingur.

Hann hefur einnig lokið öllum KSÍ þjálfaranámskeiðum nema efsta stiginu, þ.e. öllu nema KSÍ VI.

Hann hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka á Selfossi með fínum árangri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.