Fotbolti.net
16.10.15 - 12:12
Hafliði Breiðfjörð

Fylkir ræður 23 ára þjálfara fyrir kvennaliðið (Staðfest)

Eiður Benedikt Eiríksson eftir undirskriftina í dag.

Eiður Benedikt Eiríksson eftir undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Fylkir hefur gert þriggja ára samning við Eið Benedikt Eiríksson um að taka við þjálfun kvennaliðs félagsins en hann er aðeins 23 ára gamall og hefur þjálfað hjá yngri flokkum Fjölnis undanfarin ár. Skrifað var undir samning við hann í hádeginu í dag.
Þá var einnig staðfest að Hafsteinn Steinsson mun verða aðstoðarmaður hans en hann hefur starfað fyrir Fylki í fjölda ára við þjálfun.

Jörundur Áki Sveinsson þjálfaði Fylki en tilkynnt var í síðustu viku að hann yrði ekki áfram. Á fréttamannafundinum í hádeginu þakkaði félagið honum og Þóru Björgu Helgadóttur. sem var aðstoðarmaður hans. fyrir gott samstarf.

„Við erum himinlifandi að fá Eið í Árbæinn en hann er ótrúlega metnaðarfullur og áhugasamur þjálfari. Við viljum gera allt til að veita leikmönnum þjónustu til að bæta sig og við vitum að Eiður mun gefa leikmönnum allann þann tíma til aukaæfinga sem óskað er eftir. Það er klárt að leikmenn sem vilja ná langt eiga heima í Fylki,\" sagði Ragna Lóa Stefánsdóttir formaður meistaraflokks kvenna hjá Fylki í tilkynningu félagsins.

„Ég er ótrúlega spenntur fyrir þessu og get ekki beðið eftir að komast út á völl með leikmönnum. Ég ætla að leggja mikið á mig og mun gera allt sem ég get til að efla þá leikmenn sem taka þátt í þessu verkefni með okkur. Það er á hreinu að Fylkir mun bjóða upp á mjög spennandi umhverfi fyrir leikmenn sem vilja bæta sig,\" sagði Eiður Benedikt nýráðinn þjálfari Fylkis.
Frá undirskriftinni í dag.

Frá undirskriftinni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Fylkir ræður 23 ára þjálfara fyrir kvennaliðið (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.