Fotbolti.net
16.10.15 - 17:41
Magnús Már Einarsson

Joe Cole til Coventry á láni (Staðfest)

Joe Cole til Coventry á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Coventry hefur fengið Joe Cole á láni frá Aston Villa næstu 35 dagana.

Hinn 33 ára gamli Cole hefur ekkert komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Þessi fyrrum enski landsliðsmaður mun nú hjálpa Coventry í ensku C-deildinni næstu vikurnar.

Cole kom til Aston Villa frá West Ham í fyrra eftir að hafa verið á mála hjá Liverpool frá 2010 til 2013.

Hjá Coventry er mikil ánægja með lánssamninginn við Cole eins og sjá má hér að neðan.

Welcome to #CCFC Joe Cole, yes actual Joe Cole. Seriously, Joe Cole. The real Joe Cole. http://t.co/exmbDxIbyu pic.twitter.com/ZVGwqjqrSg

— Coventry City (@Coventry_City) October 16, 2015

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.