16.10.15 - 12:10
Hafliði Breiðfjörð
Sonja Björk í Fylki - Jasmín og Eva framlengja (Staðfest)

Sonja Björk er gengin í raðir Fylkis frá KR.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Framherjinn Sonja Björk Jóhannsdóttir er gengin í raðir Fylkis frá KR en félagið tilkynnti þetta í hádeginu.
Sonja Björk gerir tveggja ára samning við Fylki en hún hóf feril sinn á austfjörðum, fyrst með KVA, þá Fjarðabyggð og Hetta en hefur spilað með KR síðan 2009. Hún hefur skorað 69 mörk í 162 leikjum í deild og bikar.

Fylkir hefur einnig tilkynnt að tveir leikmann framlengt samning sinn hjá félaginu en það eru þær Eva Ýr Helgadóttir og Jasmín Erla Ingadóttir.
Þær voru valdar besti og efnilegasti leikmaður félagsins á lokahófi þess á dögunum. Þær Eva og Jasmín hafa verið boðaðar á A-landsliðsæfingar um komandi helgi.

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson